KTM

Supercross: Anaheim 1 og 4 hjóladagar í Kaliforníu 7.–16. janúar 2027

Aðeins 4 vörur eftir

Afsláttar verð 390,000 kr
VSK innifalinn
Við erum að setja saman lítinn hóp í alvöru motocrossferð til Suður-Kaliforníu og eigum 4 laus pláss.  Farið verður á Anaheim 1 Supercross og síðan hjólað í fjóra daga á motocrossbrautum í SoCal. Við gistum í Temecula og förum einnig í helstu motocrossbúðir á svæðinu.

Suður-Kalifornía er mekka motocross og supercross. Þarna eru brautir eins og Glen Helen, Fox Raceway, Lake Elsinore, Pala og Cahuilla Creek – og á þessum slóðum æfa og hjóla bestu ökumenn heims.

Með okkur verður Kurt Nicoll – maður sem þarf varla að kynna fyrir motocrossfólki. Fyrrum KTM-verksmiðjuökumaður, margfaldur GP-sigurvegari og einn reyndasti maðurinn í bransanum.  Kurt hefur verið djúpt inni í SoCal motocross-senunni í áratugi og sá meðal annars um utanumhaldið í kringum Travis Pastrana og Nitro Circus.

Hægt er að velja á milli KTM 125 SX, 250 SX-F, 350 SX-F og 450 SX-F.

Dagskrá

  • 7. janúar – Flug til Kaliforníu
  • 8. janúar – Frjáls dagur / verslanir
  • 9. janúar – Anaheim 1 Supercross
  • 10. janúar – Frjáls dagur
  • 11. janúar – Hjóladagur 1
  • 12. janúar – Hjóladagur 2
  • 13. janúar – Hjóladagur 3
  • 14. janúar – Hjóladagur 4
  • 15. janúar – Frjáls dagur
  • 16. janúar – Heimferð
Verð: 390.000 kr. á mann
Innifalið er
motocrosshjól í fjóra daga,
miði á Anaheim 1,
gisting,
akstur á milli staða
fararstjórn alla ferðina.

Flug er ekki innifalið. Flugið er áætlað um 120.000 kr. og hver þátttakandi bókar sitt flug sjálfur. Við sendum flugupplýsingar á hópinn svo allir geti bókað sama flug.
Aðeins 4 pláss í boði.
Þetta er ferð fyrir þá sem vilja upplifa motocross í Kaliforníu almennilega – Anaheim 1, fjórir dagar á hjóli og allt það helsta sem SoCal motocross-senan hefur upp á að bjóða.

Fararstjóri ferðarinnar er Gulli Karls, sem þekkir SoCal motocross-senuna út og inn.
Gulli og Kalli fóru fyrst saman til Suður-Kaliforníu árið 2006 og féllu strax fyrir staðnum. Síðan þá höfum við feðgar farið þangað aftur og aftur. Þarna leið okkur best saman – þarna er einfaldlega gott að vera.

Bókaðu í gegnum email gk@ktm.is
Hlekkur afritaður