Senn líður að vori og ekki seinna vænna en að kynna frábæra dagskrá fyrir komandi vertíð. Slóðavinir verða í húsakynnum KTM Ísland í þetta skiptið við Gylfaflöt 16. Dagskráin lítur vel út og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest!
Dagskráfundur er milli kl 19 og 21.
Húsið mun þó opna fyrir alla kl 17:30 til þess að spjalla saman og skoða nýjar tegundir ferðahjóla frá KTM.
Slóðavinir eru félagsskapur um jákvæða notkun mótorhjóla.
Nánar á heimasíðu slóðavina hér: Heim