Fréttir

Per Nyberg til KTM

09.10.2010

Svíinn Per Nyberg sem vann Motocross keppnina í Böloldu 2007 er genginn til liðs við KTM í Svíþjóð. Per hefur keppt á Yamaha síðustu ár en slasaðist ílla í lok ársins 2008 og gat ekkert keppt af viti í byrjun árs 2009 en er nú kominn aftur á fullt. Per er einn sá besti í Svíþjóð, hann hefur meðal annars unnið sænska meistaramótið nokkrum sinnum og markmið hans fyrir árið 2011 er að verða sænskur meistari og fara á Motocross of Nations í Frakklandi.

Gunnlaugur Karlsson ökumaður KTM á Íslandi hefur haldið góðu sambandi við Per Nyberg síðan að hann var hér á landi árið 2007 og er aldrei að vita nema að Per Nyberg komi til Íslands næsta sumar til þess að keppa í einni eða tvem keppnum.

"ég er virkilega ánægður með það að vera kominn yfir til KTM frá Yamaha, þeir eru með sennilega með besta hjólið á markaðnum í dag ásamt því að vera gera stóra hluti allsstaðar í heiminum sem er jákvætt fyrir sportið" sagði Per Nyberg