Fréttir

Ingvi Björn kominn með 2011 KTM 250 SXF

15.09.2010

Efnilegasti ökumaður landsins Ingvi Björn Birgisson #19 sem hefur keppt fyrir KTM liðið síðustu tvö ár hefur fengið nýtt hjól til æfinga. Hjólið er KTM 250 SXF 2011 árgerð með beinni innspýtingu, hjólið er með svipaðann mótor og frá því í fyrra en það er kominn ný grind, nýr afturgaffall, ný fjöðrun en nú hefur KTM komið með link afturfjöðrun sem er hönnuð af Stefan Everts í samstarfi við WP Suspension.
Hjólið er það sama og Marvin Musquin notaði til að verða heimsmeistari í MX2 Motocrossi fyrir tvem vikum.

Ingvi Björn er núverandi Íslandsmeistari í B flokk Enduro.

Ingvi Björn kemur til með að keppa í Enduro A flokki á næsta ári og Motocross unglingaflokki ásamt því að reyna fyrir sér í MX2 meistaraflokki. Ingvi Björn mun byrja tímabilið á næsta ári erlendis til að hita sig upp fyrir sumarið og er stefnan að mæta einbeittur til leiks og vinna allt sem hægt er að vinna.

Til hamingju með hjólið Ingvi Björn